Hótelið opnaði á vormánuðum 2009. Þar er aðbúnaðurinn eins og hann verður bestur. Mikið verið lagt í hvert einasta smáatriði og þjónustan er óaðfinnanleg. Topp golfvöllur hannaður af Dave Thomas. Völlurinn er sérstaklega fallegur enda ávallt vel við haldinn.
”
Ég og félagar mínir höfum reitt okkur á GB ferðir í mörg ár við að skipuleggja vorferð okkar. Við urðum sannarlega ekki fyrir vonbrigðum árið sem Bowood varð fyrir valinu, þrátt fyrir miklar væntingar. Völlurinn er mjög skemmtilegur og vel hirtur. Talvert landslag er í honum, fjöldi sandgryfja, tjarnir og skógur en þó er hann ekki eins þröngur og sumir skógarvellir. Hótelið er vistlegt og rúmgott og maturinn á Shelburne veitingastaðnum stóðst allar kröfur. Þjónustan var þó það sem mesta eftirtekt vakti í mínum hópi en hún var framúrskarandi í alla staði. Þetta er staður til að heimsækja afturGunnar Vidar, hdl. - Lex
”
Við félagarnir úr Golfklúbbi Suðurnesja fórum á vegum GB Ferða þann 6 maí til Englands til að leika á Bowood. Golfvöllurinn, ævingarsvæðið og öll þjónusta bæði á hótelinu og veitingarstöðum var til fyrirmyndar. Takk fyrir okkurSteinar Sigtryggsson, Golfklúbbi Suðurnesja
”
Reynsla mín af Bowood er mjög einföld, þarna er allt 100%. Frábær völlur, hótelið og aðstaða til algjörrar fyrirmyndar. Einn af þessum stöðum sem er alltaf jafn gaman að koma við í "pro-shop" aður en haldið er út að spila. Þessi staður er í miklu uppáhaldi hjá mér.Gunnar Gunnarsson, GKG
”
Frábær staður !!!!! Við hjónin nutum verunnar á Bowood út í ystu æsar og munum öruggleg heimsækja staðinn aftur áður en langt um líður. Umgjörðin, Hótelið, þjónustan; eldhúsið, veitingarnar og allt starfsfólkið með því bezta sem við höfum kynnst. Golfvöllurinn er mjög skemmtilegur, fjölbreytilegur og margar brautirnar mjög krefjandi. Við gefum Bowood 5 stjörnur af 5 mögulegum.Höskuldur Höskuldsson & Aðalheiður Ríkarðsdóttir
”
The region’s top championship golf course was designed by Dave Thomas. Measuring 7,317 yards from the championship tees, and always superbly presented, the golf course provides a great day out for both scratch and occasional golfers. The former estate farmhouse, dating from the 18th century, has been lovingly converted into a superb clubhouse with exceptional facilities and an informal, relaxed atmosphereTodays Golfer








Bowood er talinn besti keppnisvöllur á sínu svæði á Englandi. Völlurinn er 6600 metrar af öftustu teigum og býður uppá góða skemmtun bæði fyrir há- og lágforgjafarkylfinga.