Glæsilegsta golfhótel Costa Del Sol

Verð frá kr. 330.000,- á mann í tvíbýli (án flugs)

Fairmont La Hacienda Costa del Sol er nýtt fimm stjörnu hótel sem opnaði í febrúar 2025 í San Roque, Cádiz, á suðurströnd Spánar. Þetta er fyrsta Fairmont hótelið í Andalúsíu. Af mörgum góðum kostum á svæðinu má segja að hér sé komið allra besta hótelið á svæðinu

Staðsetning: Hótelið er staðsett í La Alcaidesa, milli Sotogrande og Gíbraltar, með útsýni yfir Miðjarðarhafið. Það er í um 70 mín akstursfjarlægð frá Málaga.

Herbergin: Herbergin (53 fm) á hótelinu er 153 talsins.  bvið bjóðum einnig uppá svítur og 47 einkavillur með eigin sundlaugum og stórum veröndum. Innréttingar eru innblásnar af andalúsískri hefð, með ljósum við, náttúrulegum áferðum og hlýjum tónum. Margar einingar bjóða upp á útsýni yfir Miðjarðarhafið eða golfvelli svæðisins.

Veitingastaðir: Hótelið státar af 4 veitingastöðum, þar á meðal Dalmar, sem er undir stjórn tveggja Michelin-stjörnu kokksins Benito Gómez.

DALMAR

EL FARO DE LA HACIENDA

UMBRA

VISTA LOUNGE & TERRACE

Ekki má gleyma strandklúbbnum  sem breytist í líflegan skemmtistað á kvöldin með DJ og nútímalegum útgáfum af hefðbundnum réttum eins og „espeto“.

Heilsulind: Heilsulindin á hótelinu er 1.800 m² að stærð og býður upp á fjölbreytt úrval meðferða, þar á meðal hammam, gufubað, snjóbrunn og jóga- og líkamsræktarsvæði. Gestir geta notið meðferða frá þekktum vörumerkjum eins og Subtle Energies og 111Skin, auk sérhæfðra hand- og fótsnyrtinga frá Bastien Gonzalez.

Golfvellir: Hótelinu fylgja tveir frábærir 18 holur vellir, Alcaidesa Links og Heathland völlurinn.

Annað: Annað sem hægt er að gera á svæðinu fyrir utan golf er að hjóla um fjalllendi svæðisins eða heimsækja smábátahöfnina í Sotogrande þar sem er mikið líf og veitingastaðir á hverju götuhorni, spila tennis og padel svo eitthvað sé nefnt.

Fairmont La Hacienda Costa del Sol er nýtt fimm stjörnu hótel sem opnaði í febrúar 2025 í San Roque, Cádiz, á suðurströnd Spánar. Af mörgum góðum kostum á svæðinu má segja að hér sé komið allra besta hótelið á svæðinu. Hótelið er í um 70 aksturfjarlægð frá Malaga Flugvelli og 30 mínútur frá Gíbraltar flugvelli. Alcaidesa links er einn af mínum uppáhaldsvöllum á svæðinu. Landslagið er stórbrotið og völlurinn hentar öllum getustigum.
Jóhann Pétur Guðjónsson

Innifalið

7 nætur í Farmont Deluxe pool herbergi (52 fm), frí uppfærsla í Golf view herbergi sé þess óskað, með glæsilegum morgunverði, 5 x 18 holur (3 x La Hacienda Links, 2 x Heathland) og aðgengi að líkamsræktarstöð og sundlaugarsvæði hótelsins með handklæðum ásamt 1 skipti í heilsulind hótelsins.

Allir viðskiptavinir GB Ferða eiga rétt á uppfærsla í Golf view herbergi frítt sé þess óskað

Vilji fólk heimsækja heilsulindina oftar kostar EUR 35 per skipti, en er frí ef bókuð er meðferð (nudd etc)

Golfbíll kostar EUR 45,00€

Hægt að fá halft fæði fyrir 65,00€ á mann (óáfengir drykkir innifaldir)

Ef þið viljið spila meira þá gæti það verið á þessum tveim heimavöllum eða til dæmis San Roque (Old)

***Við auglýsum þessar ferðir án flugs***

 

 

 

Annað

Dagsetningar

06 sep 2025
06 sep til 13 sep
kr. 380.000 á mann í tvíbýli (án flugs) - 7 nætur 5 hringir
13 sep 2025
13 sep til 20 sep
kr. 360.000 á mann í tvíbýli (án flugs) - 7 nætur 5 hringir
20 sep 2025
20 sep til 27 sep
kr. 360.000 á mann í tvíbýli (án flugs) - 7 nætur 5 hringir
27 sep 2025
27 sep til 04 okt
kr. 360.000 á mann í tvíbýli (án flugs) - 7 nætur 5 hringir
04 okt 2025
04 okt til 11 okt
kr. 360.000 á mann í tvíbýli (án flugs) - 7 nætur 5 hringir
11 okt 2025
11 okt til 18 okt
kr. 360.000 á mann í tvíbýli (án flugs) - 7 nætur 5 hringir
18 okt 2025
18 okt til 25 okt
kr. 360.000 á mann í tvíbýli (án flugs) - 7 nætur 5 hringir
25 okt 2025
25 okt til 01 nóv
kr. 330.000 á mann í tvíbýli (án flugs) - 7 nætur 5 hringir
01 nóv 2025
01 nóv til 08 nóv
kr. 330.000 á mann í tvíbýli (án flugs) - 7 nætur 5 hringir
08 nóv 2025
08 nóv til 15 nóv
kr. 330.000 á mann í tvíbýli (án flugs) - 7 nætur 5 hringir
15 nóv 2025
15 nóv til 22 nóv
kr. 330.000 á mann í tvíbýli (án flugs) - 7 nætur 5 hringir
22 nóv 2025
22 nóv til 29 nóv
kr. 330.000 á mann í tvíbýli (án flugs) - 7 nætur 5 hringir

Skilmálar

Staðfestingargjald er 50% af heildarverði. Hægt er að fá staðfestingargjaldið endurgreitt innan 7 daga frá bókun, annars óendurkræft að öllu leyti. Eftirstöðvar skuldfærast 6 vikum fyrir brottför. Tilboðið miðast við Visa gengi 19.05.2025 EUR 150