Róm er einstakur áfangastaður fyrir fyrirtækjaferðir, þar sem saga, menning, ítölsk matargerð og ógleymanlegar upplifanir mætast.
GB Ferðir bjóða upp á sérsniðnar fyrirtækjaferðir til Rómar þar sem hugað er að öllum smáatriðum. Hvort sem markmiðið er að efla liðsheildina, verðlauna starfsfólk eða eiga ánægjulegar stundir saman í einstöku umhverfi, þá eru möguleikarnir fjölmargir.
Ferðin getur meðal annars innihaldið:
- Vönduð hótel: Val um glæsileg 4 eða 5 stjörnu hótel á góðum kjörum.
- Golf á heimsklassa: Fyrir golfáhugafólkið býðst að leika á Marco Simone Golf & Country Club, Ryder Cup völlurinn 2023.
- Persónuleg þjónusta: Starfsmaður til taks allan tímann á meðan á dvölinni stendur.
- Einkaleiðsögn í Vatikaninu: Kynntu þér Vatíkanið og hina stórkostlegu Sixtínsku kapellu með sérfróðum leiðsögumanni.
- Söguleg Róm: Einkaleiðsögn um Colosseum, Rómverska torgið og Palatínhæð þar sem saga Rómaveldis lifnar við.
- Ítölsk matarmenning: Skemmtilegt matreiðslunámskeið í Frascati, þar sem hópurinn kynnist ítölskum matargerðarhefðum og lýkur upplifuninni með sameiginlegum hádegisverði.
Frascati – Smakk af hinu sanna Ítalíu
Frascati er sögufrægur og fallegur hæðarbær í um 20 km fjarlægð frá Róm, á hinu þekkta Castelli Romani-svæði. Þar gefst einstakt tækifæri til að upplifa ítalska matarmenningu, fallegt umhverfi og hlýlegt andrúmsloft fjarri ys og þys stórborgarinnar.
Byrjum skipulagninguna tímanlega
Góð fyrirtækjaferð byrjar á góðum undirbúningi. Við mælum með að hefja skipulagningu með góðum fyrirvara til að tryggja hagstæð flugfargjöld, gott úrval hótela og bestu mögulegu kjörin.
Hafðu samband við GB Ferðir og óskaðu eftir tilboði.
Innifalið
3 nætur með glæsilegum morgunverði, flug og akstur til og frá flugvelli.