Kempinski Hotel Das Tirol er gríðarlega vel útbúið með risastóru lobby svæði, þar sem er m.a. skíðaverslun og skíðaleiga, lounge svæði, kaffihús, leikherbergi og skíðageymsla. Að auki er einn virtasti skíðaskóli Tirol staðsettur á hótelinu. Herbergin á hótelinu er mjög smekkleg og hlýlega innréttuð. Stærðin er góð eða að lágmarki 37 fm. og nóg skápapláss og snagar fyrir útifatnaðinn. Sloppar og inniskór eru inni á öllum herbergjum. Heilsulind hótelsins er 3.200 fm. Þar er allt sem hugurinn girnist. Taka má lyftu beint í heilsulindina og því óþarfi að ganga í gegnum lobbý hótelsins á sloppnum. Í heilsulindinni er inni og útisundlaug og heitur pottur úti og eru börn velkomin þar í fylgd með fullorðnum á opnunartíma, en sum svæði í heilsulindinni eru einungis ætluð fullorðnum. 360 virtual tour
Á hótelinu er starfræktur krakkaklúbbur og barnapössum. Það kostar ekkert aukalega að fá pössun fyrir börnin (frá 3 ára) sem er mikils virði fyrir barnafjölskyldur. Þannig geta krakkarnir verið í leikherberginu, með gæslu ef þess er þörf, ef foreldrarnir vilja eiga rólega stund á góðum veitingastað eða fara í bæinn eftir skíði.