Á suðurströnd Spánar, þar sem andalúsískar hæðir mæta Miðjarðarhafinu, er að finna hið glæsilega fimm stjörnu hótel OKU Andalusia. Hótelið er einstaklega fallegur áfangastaður fyrir þá sem vilja sameina afslappaðan lúxus, framúrskarandi þjónustu og einstaka upplifun í sólinni.
Arkitektúr hótelsins sækir innblástur í hefðbundna andalúsíska byggingarlist, með hvítum byggingum, náttúrulegum efnum, hlýjum jarðlitum og gróskumiklum görðum. Útkoman er fágað og hlýlegt umhverfi þar sem nútímaleg hönnun og hefðbundin spænsk stemning fara einstaklega vel saman.
Hótelið stendur við fallega La Alcaidesa-ströndina og býður upp á stórkostlegt útsýni yfir Miðjarðarhafið. Þar má njóta glæsilegra infinity-sundlauga, strandklúbbs og friðsæls umhverfis sem býður upp á fullkomna afslöppun.
Herbergin og svíturnar eru innréttuð af mikilli natni þar sem þægindi, náttúruleg efni og fáguð hönnun eru í fyrirrúmi. Gestir geta valið um glæsileg herbergi, svítur með einkasundlaug og rúmgóðar fjölskyldusvítur. Einnig býður hótelið upp á glæsilegt fjögurra svefnherbergja einkahús við sjávarsíðuna.
Veitingastaðir og matargerð
Matarupplifunin er stór hluti af dvölinni. Á hótelinu eru fjölbreyttir veitingastaðir sem bjóða upp á allt frá afslappaðri Miðjarðarhafsmatargerð við sundlaugina til glæsilegrar alþjóðlegrar matargerðar.
Teyo býður upp á spennandi japanska og asísk-ameríska samsetningarmatargerð, á meðan Alma Beach Club er hinn fullkomni staður til að njóta góðs matar og drykkja við sjávarsíðuna. Þá býður The Terrace upp á ítalska matargerð í fallegu umhverfi.
Heilsulind og vellíðan
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins til fulls er glæsileg 2.000 fermetra heilsulind á hótelinu. Þar má finna innisundlaug, gufubað, slökunaraðstöðu, meðferðarherbergi og fjölbreytta vellíðunardagskrá.
Einnig eru tvær vel búnar líkamsræktaraðstöður, tennis- og padelvellir og fjölbreyttir jógatímar. Hér er lögð áhersla á að gestir geti bæði slakað á og sinnt heilsu og hreyfingu í fallegu umhverfi.
Innifalið
7 nætur í Deluxe herbergi (king bed eða twin bed) með glæsilegum morgunverði, aðgengi að gym hótelsins.
***Við auglýsum þessar ferðir án flugs***
Icelandair fljúga til Malaga 2 sinnum í viku. Ef þið eruð færri en 12 þá bókum við einstaklingsmiða. Ef þið eruð 10 eða fleiri þá getum við boðið ykkur hópamiða.