Vikuferðir á fimm stjörnu hótelið Toscana Resort Castelfalfi á Ítalíu. Ótakmarkað golf
Á svæðinu er fjölbreytt afþreying og aðstaðan er mjög hugguleg. Þarna er 27 holu golfvöllur, heilsulind, inni- og útisundlaug, góðar gönguleiðir auk þess sem boðið er upp á veiði og góða aðstöðu til að stunda hjólreiðar. Jafnframt eru 4 veitingastaðir á svæðinu. Auk fjölbreyttrar útivistar er hægt er að fara í vínsmökkun tengt vínræktinni og eins má njóta afraksturs ólívuræktarinnar skammt frá. Næstu flugvellir við Castelfalfi Resort eru í Pisa og Flórens sem eru í 60 mínútna akstursfjarlægð. Einnig flýgur Icelandair beint til Mílanó frá 25. maí og fram á haust en þaðan er 4 klst. akstur til Castelfalfi. Við mælum með að leigja bílaleigubíl, sérstaklega vegna þess að það er gaman að skoða sig um eftir golfið einhverja dagana. Nærliggjandi borgir sem vert er að heimsækja eru San Gimignano (30min), Siena (60 min) og Flórens (75 mín). Einnig eru frábærir veitingastaðir í nágrenninu á betri verðum en á hótelinu sem gaman er að heimsækja. Við mælum með þeim bestu.
Toscana Resort Castelfalfi – 5 stjörnur
Nýtt fimm stjörnu hótel sem er í alla staði stórkostlegt. Vel hannað, frábær þjónusta og draumur í mat og drykk. Heilsulindin er heimsklassa með inni og útisundlaug. 3 gufuböðum, hvíldarherbergjum og meðferðarherbergjum. Í boði eru
- Tabaccaia Classic 21 sqm (23)Deluxe 29 sqm (47)
- Tabaccaia Superior 33 sqm (4)
- Deluxe View 34 sqm (21)
- Tabaccaia Premium 54 sqm (4)
- Prestige 43 sqm (13)
- Prestige View 51 sqm (19)
- Executive View 41 sqm (12)
- Suite View 64 sqm (8)
Hér er notalegt að vera og upplifa dásamlega matar- og vínmenningu héraðsins.
Annað:
Kvöldverður: Þriggja rétta kvöldverður á La Via Del Sale, sem er aðal veitingastaðurinn á hótelinu, 52 Evrur á manninn (hálft fæði). Börn undir 12 ára fá 50% afslátt af kvöldverðinum.
Golf
27 holur EUR 102,
18 holur EUR83,-
9 holur EUR51,-
Golfbílar (með GPS):
9 holur – EUR34
18 holur – EUR56
27 holur – EUR80
Rafmagnskerrur:
EUR18
Venjulegar kerrur:
EUR 6
Leiga á golfsetti:
EUR 35 for 9 holes
EUR 55 for 18 holes
Akstur til og frá flugvelli
Flutningur frá/til PISA flugvelli – 160 EUR á bíl per legg (hámark 3 pax. Mercedes E-Class eða sambærilegur og enskumælandi bílstjóri)
Flutningur frá / til Florence flugvelli – 175 EUR á bíl per legg (hámark 3 pax. Mercedes E-Class eða sambærilegur og enskumælandi bílstjóri)